Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/28317
Markmið ritgerðarinnar er að svara rannsóknarspurningunni „Málsmeðferð í kynferðisbrotamálum gegn börnum“. Umfjöllun ritgerðarinnar mun fyrst og síðast beinast að þeim lagaákvæðum sem eiga við um málsmeðferð í kynferðisbrotamálum gegn börnum þ.e. almennum hegningarlögum nr. 19/1949, lögum um meðferð sakamála nr. 88/2008 og barnaverndarlögum nr. 80/2002. Fjallað verður um lagabreytingar sem átt hafa sér stað í almennum hegningarlögum og þá sérstaklega sem áttu sér stað með breytingarlögum nr. 61/2007. Veigamiklar breytingar voru gerðar á kynferðisbrotakafla laganna sem snúa að fyrningu kynferðisbrota gegn börnum. Teknir verða til skoðunar dómar sem snúa að kynferðisbrotum gegn börnum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ritgerð JHS.pdf | 778.08 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |