Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/28359
Niðurstaða ferlisins kallast Brot.
Reynt er að fanga brot úr umbreytingum náttúrunnar:
Niðurbrot jökulsins sem skríður undir eigin þunga.
Ferðalag jökulbrotanna til sjávar.
Stöðugur ágangur sjávarfallanna.
Með staðsetningu sinni ramma mannvirkin inn þessi náttúrufyrirbæri og fela í sér tvíþættar athafnir, dvöl og göngu. Þannig stýra mannvirkin flæði fólks en gefa jafnframt tækifæri til að staldra við og dvelja. Leikið er með samspil hins manngerða og náttúrlega og hvernig tíminn setur mark sitt á hvort tveggja. Rýmin hafa óskýrt upphaf og endi og eiga í virku samspili við náttúruöflin. Efniskennd er steypa, staðföst á móti breytileika náttúrunnar þó óvarin svo mannvirki veðrast með tímans tönn. Ýtt er undir skynjanir ferðalangsins og þátttöku hans í heimi náttúruaflanna.
Þannig raðast brotin saman.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Hönnunargreining_VakaGunnarsdóttir_2017.pdf | 13.61 MB | Open | Greinargerð | View/Open |