Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/28360
Ferðamenn eru fjölbreyttur hópur fólks með margskyns væntingar sem kalla á mismunandi þjónustu. Þjónustubyggingar og skipulag þessa verkefnis tengja saman mismunandi náttúruleg svæði sem búa nú þegar yfir miklu aðdráttarafli. Með inngripinu er lagt upp með að brúa bil á milli mannsins og náttúrunnar þannig að það undirstriki aðdráttaraflið sem fyrir er. Leitast er við að byggingarnar liggi áreynslulaust í náttúrunni og séu ekki í samkeppni við umhverfi sitt. Byggingarnar eru hlédrægar og hugsaðar sem tímabundnar og hreyf-anlegar. Þær eiga að koma til móts við þá óvissu sem hraðar breytingar náttúrunnar á svæðinu fela í sér. Óbeinar en áhrifaríkar opnanir innanfrá og áþreifanleiki í efnisvali ýtir undir frekari jarðtengingu ferðamannsins sem getur leitað hvíldar frá streituvaldandi umhverfi hversdagsins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hönnunargreining Davíð Sn. Sv..pdf | 19.91 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |