Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/28401
Í þessari ritgerð er aðalviðfangsefnið kvenstjórnendur í fjármálageiranum. Þar sem konur eru meirihluti allra starfsmanna í fjármálageiranum kom það höfundi á óvart að þær eru í miklum minnihluta í æðstu stjórnunarstörfum. Leitast var við að svara af hverju svo er og einnig var skoðað hvort hindranir virðist vera í vegi kvenna í átt að æðstu stjórnunarstöðum. Tekin voru fimm djúpviðtöl við millistjórnendur í fjármálageiranum, þrjár konur og tvo karla. Stuðst var við eigindlega rannsóknaraðferð við úrvinnslu gagna. Niðurstöður leiddu í ljós að viðmælendur töldu helstu ástæður þess að konur eru í miklum minnihluta æðstu stjórnunarstarfa í fjármálageiranum vera annars vegar þá að þær sinni frekar störfum sem þarfnast lægra menntunarstigs og minni reynslu og hins vegar að ýmsar hindranir væru í vegi kvenna. Flestir viðmælendurnir voru sammála um að stærsta hindrun kvenna væru þær sjálfar. Kvenkyns viðmælendurnir höfðu orðið varir við ýmis ljón í vegi sínum. Sem dæmi má nefna útilokun frá samskiptum, staðalímyndir, fjölskyldulífið og glerþakið. Ekki er þó öll von úti fyrir konur sem hafa áhuga á að komast í æðstu stjórnunarstörf en viðmælendur töldu tengslanet, markþjálfun og handleiðslu geta skipt sköpum fyrir einstaklinga sem vilja klífa upp metorðastigann.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Ljonin_i_veginum_HMB.pdf | 1.83 MB | Open | Heildartexti | View/Open |