Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/28484
BA ritgerð þessi fjallar um hvaða áhrif það hefur á systkini þegar fatlað barn fæðist inn í fjölskyldu. Rannsóknarspurningar ritgerðarinnar leitast eftir að fá sýn systkina á það hvernig það er að alast upp með fötluðu systkini. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á hvort eða hvernig systkini bregðast við þegar þau eignast fatlað systkini. Ritgerðin byggir annars vegar á fræðilegum heimildum um skilgreiningu á fötlun, fjölskylduna og systkinin og hins vegar á eigindlegum rannsóknaraðferðum og gagnaöflun. Tekin voru viðtöl við fjóra einstaklinga sem öll höfðu alist upp með fötluðu systkini, þó á mismunandi tímum. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að gríðarlega mikill munur hefur á undanförnum áratugum orðið á því að alast upp með fötluðu systkini þar sem þjónustan við bæði foreldra og systkinin er mun meiri í dag heldur en fyrir um þrjátíu árum.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Hvaða áhrif hefur það á systkini þegar fatlað barn fæðist inn í fjölskyldu.pdf | 887.53 kB | Open | Heildartexti | View/Open | |
Elva_Bjork_Gudmundsdottir_2016_03_skemman_yfirlysing_lokaverkefni_29.03.16(1)-signed.pdf | 99.06 kB | Locked | Yfirlýsing |