Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/28555
Eftirfarandi greinagerð er unnin sem lokaverkefni til B.Ed. gráðu í grunnskólakennarafræði við Háskóla Íslands, Menntavísindasviði sumarið 2017. Greinagerðin fjallar um námsverkefni ætlað 10. bekk í grunnskóla.
Verkefnið á að samþætta lífsleikni, trúarbragðafræði, landafræði, þjóðfélagsfræði og sögu. Hægt er að nýta það sem eintaklings- og paraverkefni. Verkefninu er ætlað að efla hugarflug og ímyndunarafl ásamt skapandi hugsun nemenda. Einnig munu nemendur læra um mismunandi samfélög og menningarheima og einbeita sér að eftirfarandi hæfniviðmiðum samfélagsgreina: jafnrétti, mannréttindum, lýðræði, virðingu, siðgæðisvitund, tjáningu, sköpun, fjölskyldugerðum, fjölmenningu, heimssögu og trúarbrögðum.
Við gerð þessa verkefnis las höfundur sér til um hæfniviðmið samfélagsgreina í Aðalnámskrá grunnskóla, ásamt því að kynna sér fjölmargar bækur um kennsluaðferðir, námsmat, spunaspil og greinar um notkun ímynduarafls í samfélagsgreinum. Höfundur setti fram líkan af verkefni, hvernig framvinda þess ætti að fara fram og hvaða spilagögn væru ómissandi ásamt markmiði verkefnisins með samþættingu og tengingu við Aðalnámskrá grunnskóla.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerð um Í sporum annarra .pdf | 3.92 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
yfirlysing_lokaverkefni_kdub.pdf | 206.42 kB | Lokaður | Yfirlýsing |