Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/2871
Í þessari ritgerð er fjallað um boðleiðir, tegundir og afleiðingar rafræns eineltis. Athugaðar verða erlendar rannsóknir á rafrænu einelti ásamt því að skoða niðurstöður hluta rannsóknar sem gerð var á heilsu og líðan grunnskólabarna á Íslandi þar sem spurt var um rafrænt einelti. Einnig verða kynntar niðurstöður
eigindlegrar rannsóknar sem höfundar unnu á haustmánuðum 2008 þar sem kannað var viðhorf fagfólks, sem starfar með börnum og unglingum, til rafræns eineltis. Niðurstöður leiddu meðal annars í ljós að forvarnir eru það sem viðmælendur telja að skili bestum árangri í því að vinna gegn rafrænu einelti. Viðmælendur töldu að lykilþættirnir í forvörnum væru að fyrirbyggja með fræðslu, vitundarvakningu og eftirliti. Orðræða fagfólks á rafrænu einelti leiddi í ljós að stúlkur voru í flestum tilvikum taldar líklegri til að vera gerendur í rafrænu einelti en drengir.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
a_fixed.pdf | 381.81 kB | Locked | Meginmál | ||
pd_fixed.pdf | 35.5 kB | Open | Útdráttur | View/Open |