is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > BSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþrótta-, iðn- og tæknifræði -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/28852

Titill: 
  • Stöðugreining á Ungmennafélagi Aftureldingar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Hvernig verður framþróunin hjá Ungmennafélagsins Aftureldingar (UMFA)? Tilgangur ritgerðarinnar er að gera hagnýtt verkefni sem nýtist við gerð stefnumótunar fyrir félagið og draga fram þá þætti sem taka þyrfti til endurskoðunar í uppbyggingu félagsins. Stöðugreining er mikilvægur hluti af stefnumótunarferli og nýtist verkefni þetta sem hluti stöðugreiningar í stefnumótun félagsins. Við greininguna var unnið að miklu leyti út frá hugmyndum og áliti forsvarsmanna deilda sem og formanns félags og framkvæmdarstjóra þess. Notast var bæði við megindlegar og eigindlegar aðferðir við gagnasöfnun frá formönnum, yfirþjálfurum og öðrum stjórnarmönnum innan hverrar deildar. Sendur var út spurningalisti og honum fylgt eftir með viðtölum. Þá fóru fram eigindleg viðtöl við framkvæmdastjóra, formann UMFA og við bæjarstjóra sveitarfélagsins. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að skortur á formfestu og skýrleika í verklagi, boðleiðum og samskiptum innan félagsins og út úr því virðist hefta öra framþróun félagsins. Áherslur, stefna og verklag virðast haldast í hendur við stefnu og sýn þeirra sem sitja við stjórnvölinn hverju sinni. Þetta leiðir af sér að tími, orka og vinnuframlag félagsmanna, sjálfboðaliða og starfsmanna nýtist ekki sem skyldi sökum illa skilgreindra hlutverka þeirra, ábyrgðar og boðleiða til annarra þátta starfsins.

Samþykkt: 
  • 5.9.2017
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/28852


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Stöðugreining á Ungmennafélagi Aftureldingar.pdf905,32 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna