Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/28969
Við upphaf 9. áratugarins var þróun orðin stór hluti af heiminum. Þótt 40 ár hafi liðið frá upphafi þróunaraðstoðar var fátækt og neyð enn stórt vandamál á svæðum þriðja heimsins. Á þessum tíma fóru mannfræðingar að velta fyrir sér hvað það væri sem þróunaraðstoð væri í raun og veru að gera. Fræðimenn á borð við Arturo Escobar og James Ferguson skoðuðu þróunaraðstoð og gagnrýndu störf hennar. Í þessari ritgerð verður fjallað um samband mannfræðinnar og þróunar. Farið verður niður í saumana á helstu gagnrýni sem þróunaraðstoð hefur fengið á sig af hálfu mannfræðinnar. Í síðasta þriðjungi ritgerðarinnar verður svo varpað ljósi á nýrra form af þróunarsamvinnu og leiðir til þess að stunda hana. Sýnt verður fram á að þrátt fyrir að þróunarstarf hafi breyst þar sem aukin áhersla er á siðferði verkefnanna á fyrri gagnrýni mannfræðinga enn fullan rétt á sér.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lára Þórðardóttir BA ritgerð- þróunarsamvinna.pdf | 854.15 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing_-_Skemman_-_tilbúin.pdf | 212.76 kB | Lokaður | Yfirlýsing |