is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/29154

Titill: 
  • Áhrifaþættir í uppbyggingu á ferðaþjónustu á Siglufirði
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Mikið hefur verið rætt um það hve atvinnuskapandi ferðaþjónustan sé og hver áhrif fjölgun ferðamanna til landsins hafa verið. Með dreifingu ferðamanna um landið og eflingu ferðaþjónustunnar býður það bæjarfélögum upp á ný tækifæri. Atvinnusköpun hefur gjarnan í för með sér íbúaþróun og bætt lífsgæði fyrir íbúa þess svæðis. Markmiðið með rannsókn þessari er að komast að því hvernig hægt er að byggja upp ferðaþjónustu í bæjarfélögum úti á landi. Rannsóknarspurning okkar hljóðar því svo; hvaða þættir hafa skipt meginmáli í uppbyggingu á ferðaþjónustu á Siglufirði? Framkvæmd var eigindleg rannsókn og rætt var forsvarsmenn fjörurra fyrirtækja á Siglufirði sem tengjast ferðaþjónustu með einum eða öðrum hætti. Tilgangur rannsóknarinnar var að varpa ljósi á þá þætti sem skipt hafa máli fyrir ferðaþjónustu á Siglufirði að sögn viðmælenda okkar og hvernig þessir þættir vinna saman að uppbyggingu á ferðaþjónustunni. Niðurstöður úr rannsókninni leiddu í ljós að viðmælendur fjölluðu allir um nokkra lykilþætti sem fyrir þeim skiptu meginmáli við uppbyggingu á ferðaþjónustu á Siglufirði. Þessi lykilatriði voru samgöngur og þróun ferðaþjónustu á Siglufirði, nýsköpun, íbúa- og atvinnuþróun, samvinna, tengslanet og félagsauður og að lokum þróun og framtíðarsýn.

  • Útdráttur er á ensku

    It has been commonly talked about how the tourism industry has created jobs and what the influence of increased tourism to Iceland has been. Spreading tourism around the country and strengthening the tourism industry in smaller communities offers many opportunities. Along with job creation there can be increased population growth and improved quality of life in that specific area. The goal of this research was to find out how to develop the tourism industry in rural towns. Our research question is; What has been the main influencing factors in developing tourism in Siglufjörður? The research method was qualitative and interviews were conducted with spokespersons from four companies that have relations to tourism. The purpose of the research was to bring to attention the factors that have been of importance to the tourism industry in Siglufjörður according to our interviewees and how these factors influenced the development of the tourism industry there. The conclusions showed that all of the interviewees mentioned the same factors that made the most importance for them in the development of tourism in Siglufjörður. These main factors were transportation and development of tourism in Siglufjörður, innovation, population and employment development, cooperation, social network and social capital and finally development and vision for the future.

Samþykkt: 
  • 12.10.2017
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/29154


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Karítas Heimisdóttir og Ríkey Gunnarsdóttir_BS ritgerð (1).docx til að skila á skemmu.pdf1,06 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
yfirlýsing - rikey og karitas.pdf13,9 kBLokaðurYfirlýsingPDF