Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/29157
Við framleiðslu á áli verður til flúorgas. Gasið er sogað inn á hreinsivirki til hreinsunar þar sem flúorgasið binst nýju súráli og er endurnýtt í framleiðslunni. Styrkur gassins sem fer út úr virkjunum er þegar best lætur allt að 99,8% hreinni miðað við það gas sem kom inn. Markmið verkefnisins var að athuga hvort aukin sjálfvirkni skili sér í betri árangri við hreinsun. Verkefnið skiptist í i) greiningu á ferli súrálsflæðisins, ii) að koma með tæknilausn sem miðar að aukinni sjálfvirkni, iii) að tilraunakeyra tilsvarandi tæknilausn og vi) að nota mælingar til að staðfesta árangur, með því að skoða mun á árangri hreinsunar bæði með engri stýringu og þegar flæðinu er stjórnað. Þrátt fyrir takmarkaðar mælingar sína niðurstöður verkefnisins að það sé til bóta að sjálfvirknivæða innmötun á súráli.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Er hægt að auka sjálfvirkni á súrálsflæði inn á hreinsivirki fyrir hreinsun á vetnisflúoríði.pdf | 1,35 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
| Yfirlýsing_Sigurjón.pdf | 15,61 kB | Lokaður | Yfirlýsing |