en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/29178

Title: 
  • Title is in Icelandic Snemmtæk íhlutun : fagleg vinnubrögð við gerð einstaklingsáætlana
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Rannsóknir hafa sýnt fram á að hægt sé að hafa mikil áhrif á þroskaframvindu barna með því að grípa inn í með markvissum hætti þegar um barn með frávik í þroska, hegðun og/eða barn í áhættuhóp er um að ræða (Tryggvi Sigurðsson, 2004). Tilgangur verkefnisins er að brýna þörfina á að faglegum vinnubrögðum og mikilvægi þeirra til að ná hvað mestum árangri í vinnu með ungum börnum. Markmiðssetning er forsenda þess að hægt sé að tala um að unnið sé eftir snemmtækri íhlutun og því þarf að kynna vel þau vinnubrögð sem höfð skulu í fyrirrúmi. Verkefnið skiptist í tvo hluta, annars vegar greinagerð sem byggð er á fræðilegum heimildum og hins vegar bæklingi. Í greinargerðinni er fjallað um kenningar fræðimanna sem lögðu grunninn að hugmyndafræði snemmtækrar íhlutunar. Þá verður fjallað almennt um snemmtæka íhlutun, þróun hugmyndafræðinnar og þá þætti sem skipta máli þegar unnið er að henni. Þar að auki verður fjallað um fagleg vinnubrögð við einstaklingsáætlanagerð. Þar er komið inn á matslista og þá sérstaklega færnimiðaða matslistann AEPS. Inn í þessa umfjöllun fléttast lög, reglugerðir og aðrar samþykktir sem liggja fyrir. Í lok greinagerðarinnar er fjallað um bækling sem fylgir verkefninu. Bæklingurinn er leiðarvísir að snemmtækri íhlutun og leiðbeiningar að faglegum vinnubrögðum við einstaklingsáætlanagerð. Þessi bæklingur er hugsaður sem uppflettirit fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í einstaklingsáætlanagerð auk þess sem gott er að hafa hann við hendina til fróðleiks.

Accepted: 
  • Oct 23, 2017
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/29178


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
SKEMMUSKIL.pdf940.96 kBOpenReportPDFView/Open
Snemmtæk íhlutun bækl.pdf988.05 kBOpenBæklingurPDFView/Open
arnfridur_kr_Arnórsd_yfirl.pdf58.48 kBLockedYfirlýsingPDF