Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/2920
Ákveðinn hópur áfengis- og vímuefnaneytenda er með langt genginn sjúkdóm. Hluti hópsins sprautar vímuefnum í æð, en aðrir eru í skaðlegri drykkju og ná ekki að vera án áfengis til lengri tíma. Þessir hópar kljást oft við fleiri vandamál eins og aðrar geðraskanir eða heimilisleysi. Skaðaminnkandi hugmyndafræði (harm reduction) hefur verið notuð til að þróa íhlutanir fyrir þessa hópa og eiga slíkar nálganir sér langa sögu í Evrópu, Kanada, Ástralíu og Bandaríkjunum. Tilgangur þessarar fræðilegu úttektar er að fjalla um skaðaminnkun með sérstaka áherslu á nálaskiptiþjónustu, neysluherbergi (drug consumption room), viðhaldsmeðferð (methadonmeðferð) og skaðaminnkun í fangelsum. Þessar nálganir fela í sér íhlutanir og þjónustu sem veitt er virkum áfengis- og vímuefnaneytendum. Með þessum nálgunum er leitast við koma á sambandi milli hópsins og heilbrigðiskerfis, þar sem einstaklingnum er mætt þar sem hann er. Skoðað verður að hvaða marki skaðaminnkun er beitt hér á landi.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
lganir_fixed.pdf | 306.83 kB | Open | Heildartexti | View/Open |