Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/2923
Niðurstöður: Þessarar rannsóknar sýna fyrstu viðmið fyrir íslenska gerð heilabilunarkvarðans MDRS-2, eða Mattis prófið. Heilabilun er vaxandi samfélagslegt vandamál sökum hækkandi
aldurs Íslendinga og eru hrörnunarsjúkdómar s.s. Alzheimers og heilaæðasjúkdómar
algengustu orsakavaldarnir. Aukin krafa um gæði taugasálfræðilegra greininga kallar á bætt
greiningartæki og viðmið. MDRS-2 kvarðinn hefur áður hefur verið þýddur og forprófaður í
íslensku þýði 65 ára og eldri en íslensk viðmið hefur skort. Úrtakið samanstendur af alls 137
Íslendingum 65 ára og eldri og fóru prófanir fram á fjórum stöðum á landinu. Viðmið eru
reiknuð út frá aldri og menntun og var notast við fjölbreytu dreifigreiningu við tölfræðilega
úrlausn. Fylgni var einnig reiknuð á milli MMSE og 3MS skimunarprófana og
heildarniðurstöðu MDRS-2 og undirkvarða þess. Niðurstöður eru að meðalútkoma á prófinu
er 130,3 með staðalfrávikið 8,5 (spönn 106-130 stig). Heildarniðurstaða MDRS-2 hefur
marktæka fylgni bæði við MMSE og 3MS sem og allir undirkvarðar þess nema teikning
flatarmynda.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
2009_fixed.pdf | 631.02 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |