is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/29236

Titill: 
  • Viðhorf fagfólks til móttöku og þjónustu við fylgdarlaus börn á Íslandi
  • Titill er á ensku The viewpoint of professionals towards the reception of and service for unaccompanied children in Iceland
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Samkvæmt Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur koma barna án fylgdar til Evrópu aukist gífurlega síðastliðin ár. Fylgdarlaus börn eru einstaklega viðkvæmur hópur sem þarf á sérstakri vernd og þjónustu að halda og er þessi hópur tiltölulega nýr hérlendis.
    Markmið þessarar rannsóknar er að kanna viðhorf og reynslu fagfólks varðandi móttöku og þjónustu við fylgdarlaus börn sem koma til Íslands. Leitað var svara við tveimur rannsóknarspurningum: 1. Hvernig er móttöku og þjónustu fyrir fylgdarlaus börn háttað hérlendis? 2. Hvað má betur fara í móttöku og þjónustu við fylgdarlaus börn hér á landi? Rannsóknin var framkvæmd með eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem tekin voru átta hálfstöðluð viðtöl við fagfólk sem á það sameiginlegt að koma að málefnum fylgdarlausra barna í starfi sínu.
    Greining á niðurstöðum rannsóknarinnar sýndi að það er lítil reynsla hérlendis af að taka á móti og veita fylgdarlausum börnum þjónustu sem kemur til af því hve nýr málaflokkurinn er að mati viðmælenda. Verklag og samstarf í móttöku og þjónustu er í sífelldri þróun. Fylgdarlaus börn hérlendis skortir betri aðbúnað að mati viðmælenda meðan umsókn þeirra um alþjóðlega vernd er í vinnslu og einnig skortir þau daglegan félagslegan stuðning. Rannsóknin leiddi jafnframt í ljós að viðmælendur voru almennt sammála um þörf á skýrara verklagi og hlutverkaskiptingu í móttöku og þjónustu við fylgdarlaus börn og að það myndi bæta samstarf á milli stofnana og auka gæði þjónustunnar.

  • Útdráttur er á ensku

    According to the United Nations High Commissioner for Refugees, the arrival of unaccompanied children has increased tremendously in the last few years. Unaccompanied children are a particularly vulnerable group that needs special protection and services, and their arrival is quite recent here.
    The objective of this research is to investigate the viewpoints and experience of professionals with regard to the reception of and service for unaccompanied children arriving in Iceland. The aim was to find answers to two research questions: 1. How is the reception of and service for unaccompanied children organised in Iceland? 2. What could be improved in terms of the reception of and service for unaccompanied children in Iceland? The research was carried out with a qualitative research method, based on eight half-standardised interviews with professionals that all work in fields connected to the issues of unaccompanied children.
    The analysis of the research outcome revealed that we have little experience of receiving and providing service to unaccompanied children, because this policy area is a very recent one. Therefore, work methods are still being elaborated for this field. Unaccompanied children in Iceland need better conditions while their application for international protection is being examined. The interviewees also felt that this group needed more support. The results show that the interviewees generally agreed on the need for clearer procedures and roles when it comes to the reception of and service for unaccompanied children, and that this would improve relations between institutions and increase the quality of the service.

Samþykkt: 
  • 27.11.2017
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/29236


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
elínbjörg yfirlýsing.pdf50.29 kBLokaðurYfirlýsingPDF
Elínbjörg%20Ellertsdóttir.pdf1.2 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna