Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/29408
Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvaða ástæður brotthvarfs umfram aðrar spá fyrir um sjálfsálit, foreldrastuðning og þunglyndi. Einnig er kannað hvernig staða á vinnumarkaði tengist sömu þáttum. Rannsóknin byggir á gögnum frá rannsóknarmiðstöðinni Rannsóknum og greiningu sem safnað var árið 2009. Þátttakendur voru ungmenni á aldrinum 16-20 ára sem ekki stunduðu nám við framhaldsskóla. Niðurstöður benda til þess að ungmenni sem hættu í skóla vegna eineltis, veikinda eða námsörðugleika upplifi meira þunglyndi og minna sjálfsálit og stuðning
foreldra umfram ungmenni sem hættu af öðrum ástæðum. Niðurstöður benda enn fremur til að ungmennin í rannsókninni sem segjast atvinnulaus upplifi meira þunglyndi og minni stuðning foreldra samanborið við ungmenni sem voru í vinnu, óháð því hvaða ástæður voru að baki brotthvarfi. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi vinnu náms- og
starfsráðgjafa í stuðningi við nemendur í grunn- og framhaldsskólum ásamt því að færa rök fyrir auknu samráði fagfólks á sviði heilbrigðis- og menntamála.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
katrin.lokaeintak.pdf | 1.09 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
yfirlysing.jpg | 299.95 kB | Lokaður | JPG |