Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/29525
Patreksfjörður er syðsti fjörður Vestfjarðakjálkans. Hann er um 21 km á lengd frá Tálkna
og er meðaldýpt um 30 m. Hér er athugað samband vinda og strauma í Patreksfirði og þá
aðallega áhrif vinda á inn- og útstreymi. Unnið er úr gögnum frá Hafrannsóknastofnun sem
safnað var árið 2009 frá lok janúar til byrjun nóvember. Tveimur straumlögnum var komið
fyrir á botninum annarsvegar í utanverðum firðinum og hinsvegar í honum innanverðum.
Báðar voru þær staðsettar nær suðurströndinni. Þær mældu straumhraða í vatnssúlunni upp
að yfirborði sem var skráð á klukkustundarfresti. Ekki var hægt að nota straumgögn nálægt
yfirborði vegna suðs sem var í gögnunum. Því voru yfirborðsstraumar ekki athugaðir.
Einnig voru upplýsingum safnað um seltu, hita, eðlismassa og súrefnismettun með
straummælum. Seltugögn frá sondumælingum voru einnig notuð. Niðurstöður sýna að
fylgni er á milli vinda og strauma í Patreksfirði. Vindar úr norðaustanátt með vindhraða
yfir 10 m/s juku innstreymi í dýpri lögum fjarðarins. Innstreymi átti sér stað að meðaltali í
dýpri lögum í firðinum fyrir neðan 8 til 12 m dýpi. Það gæti verið að útflæði eigi sér stað
við norðurströndina eða þá við yfirborðið. Meðal endurnýjunartími Patreksfjarðar er u.þ.b.
fimm dagar. Vatnsskipti geta aftur á móti átt sér stað innan tveggja sólahringa yfir
nægilega löng tímabil þar sem vindhraði er yfir 10 m/s.
Patreksfjörður is the southernmost fjord in the Westfjords. It is approximately 21 km long
from Tálkni with an average depth of 30 m. The connection between winds and currents in
the fjord is examined with a focus on the in- and outflow in the fjord. Data from the
Marine and Freshwater Research Institute that was measured from the end of January until
the beginning of November in 2009. Two current measurement instruments were deployed
near the bottom on both the outer part of the fjord and the inner one. Both of them were
located closer to the southern coast. They measured current velocity for the water column
and were set to record hourly data. Data near the surface were not reliable due to surface
echo and surface currents were therefore not examined here. Temperature, salinity, density
and oxygen were also measured. Salinity data from CTD measurements were also used.
The results reveal that there is a correlation between winds and currents in Patreksfjörður.
Strong NE-winds with velocity above 10 m/s induced inflow in the deeper part of the fjord.
On average inflow takes place on the deeper part of the fjord below 8 and 12 m depth.
Whether the compensating outflow takes place closer to the northern shore or at the surface
requires further investigations. The mean renewal time of Patreksfjörður is approximately
5 days. The renewal time of Patreksfjörður becomes shorter than two days during
sufficiently long and strong wind periods with wind speed exceeding 10 m/s.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_ErlingurGeirsson.pdf | 3.47 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
yfirlysing_EG.pdf | 294.66 kB | Lokaður | Yfirlýsing |