Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/29551
Markmið þessarar ritgerðar er að komast að því hvort og hvernig nota má steinullarsamlokueiningar til að tryggja næga lárétta stífni í þökum og útveggjum einbýlishúsa.
Gerðar voru rannsóknir á límkíttinu sem notað er í samskeytum eininganna, þar sem athugað var hvort skerþol límkíttisins sé nægjanlega mikið til að taka upp þá skerkrafta sem myndast þegar minni rammabyggingar verða fyrir vindálagi í langátt.
Farið verður yfir sögu samlokueininga og verða steinullarsamlokueiningarnar skoðaðar ýtarlega.
Einnig verður fjallað um hinar ýmsu aðferðir til að stífa af byggingar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Berandi steinullarsamlokueiningar.pdf | 2.36 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Berandi steinullarsamlokueiningar - Viðaukar.pdf | 14.88 MB | Opinn | Viðauki | Skoða/Opna |