Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/29552
Markmið þessarar ritgerðar var að skoða hvernig BIM, sem stendur fyrir upplýsingalíkan mannvirkja, geti nýst við rekstur og byggingu fasteigna í eigu Bjargs íbúðafélags, sem er óhagnaðardrifið leigufélag.
BIM er aðferðafræði sem notar gögn á stafrænu formi af byggingarlíkönum til þess að bæta hönnun, hjálpa til við skipulag framkvæmda og halda utan um gögn sem síðar gætu verið notuð fyrir rekstur fasteigna.
Að mati höfundar eru ótvíræðir kostir fólgnir í því að eiga öll gögn um tiltekna fasteign samansett og aðgengileg í eignaupplýsingalíkani, eða AIM, til framtíðarnota, s.s. vegna seinni tíma framkvæmda eða
framtíðar tækniþróunar fyrir félög sem þessi.
Þá var framkvæmd samanburðargreining á tveimur BIM studdum rýmisstjórnunarkerfum sem valið stóð á milli til að nota í rekstri félagsins.
Meginniðurstöðurnar voru að bæði kerfi uppfylltu kröfur og að lítill munur var á þeim.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BSc-Árni-Þór-Lárusson-2017.pdf | 1.25 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |