Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/29556
Hönnun og hönnunaraðferðir steyptra mannvirkja skv. Eurocode
Við hönnun bygginga er margt sem hafa ber í huga.
Þessi ritgerð fer yfir helstu aðferðir við hönnun á fimm hæða fjölbýlishúsi í Mosfellsbæ skv. Eurocode. Farið verður yfir burðarvirkishönnun sem höfundur framkvæmdi og nokkur sýnidæmi skoðuð.
Samanburður hönnunaraðferða er gerður í kafla um hugleiðingar hönnuðar. Þar eru tvær aðferðir við hönnun skerveggja kynntar og tillögur gerðar að hvenær æskilegt sé að nota þær. Farið er yfir vangaveltur
varðandi rifið þversnið við skerveggjahönnun. Áhrif íslenskra fylliefna á niðurbeygjur eru skoðuð. Að auki er hönnunarróf byggingarinnar borið saman við jarðskjálftaróf úr tímaröðum frá Suðurlandsskjálftunum
árið 2000 og 2008.
Eftir lestur á lesandi að gera sér grein fyrir þeim aðferðum sem hann þarf að beita við hönnun steyptra bygginga skv. Eurocode ásamt því að vita hvaða aðferðir er hagkvæmt að nota.
| Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
|---|---|---|---|---|---|
| Ritgerðin með viðaukum.pdf | 10,8 MB | Open | Complete Text | View/Open |