Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/29574
Sprautusöltunarvél sem staðsett er í Hafnafirði er þannig búin að nálarnar í henni gefa ekkert eftir og bogna/kikna ef þær verða fyrir
mótstöðu. Þetta orsakast af því að krafturinn vegna þrýstingsins á saltvatninu sem dælist í gegnum nálina er stærri en krafturinn sem
þarf til þess að nálin kikni. Verkefnið mun ganga út á að finna lausn við þessu vandamáli.
Markmið verkefnisins er að hanna búnað sem gerir nálunum kleift að gefa eftir ef þær verða fyrir mótstöðu. Lausnin á þessu vandamáli var að hleypa þrýsting neðan á nálarnar og þar með létta á kraftinum sem verkar
ofan á þær. Markmiðið með þessari hugmynd er að geta stillt við hversu mikinn kraft nálin gefur eftir. Þessi búnaður var hannaður, prófaður
og fenginn til að virka eins og lagt var upp með.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| BSc-Andri-2017.pdf | 17,72 MB | Lokaður til...10.01.2038 | Heildartexti | ||
| Beiðni um lokun lokaverkefnis[661].pdf | 445,88 kB | Opinn | Beiðni um lokun | Skoða/Opna |