Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/29673
Þetta lokaverkefni er til B.A. – gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði frá Háskóla Íslands. Markmið verkefnis er að kanna hvaða ástæður liggja að baki því að sum börn úr 1. - 4. bekk eru ekki skráð á frístundaheimili. Til þess að leita svara við því framkvæmdi ég könnun í samstarfi við leiðbeinanda minn og skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar (SFS). SFS sá um að senda út spurningalista á úrtak foreldra sem eiga barn í 1. – 4. bekk og eru ekki með barnið skráð á frístundaheimili. Eftirfarandi niðurstöður sýna að þetta eru helstu ástæður þess að barnið var ekki skráð á frístundaheimili: Barninu fannst ekki gaman á frístundaheimilinu; Foreldar treysta barninu til þess að vera eitt heima; Vinir barnsins voru ekki skráðir á frístundaheimilið; Barnið stundar aðrar tómstundir eftir skóla. Draga má þá ályktun að viðhorf barnanna til starfsins skiptir máli, ekki síst barna úr 3. – 4. bekk. Verkefnið skilar hagnýtum upplýsingum til stefnumótunaraðila frístundaheimila, börnum þykir mikilvægast að vinirnir séu með á frístundaheimilinu og með aldrinum minnkar áhugi fyrir því að vera á frístundaheimili.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni_GuðrúnMaría.pdf | 1.03 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
2016_03_skemman_yfirlysing_lokaverkefni_29.03.16.pdf | 232.26 kB | Lokaður | Yfirlýsing |