Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/29755
Í lokaverkefni þessu verður leitast við að skilgreina hugtökin lögmanns- og lögfræðiþjónusta, með það að markmiði að svara rannsóknarspurningu verkefnisins hvort breytinga sé þörf á regluverki varðandi þessa þjónustu. Í upphafi verða lög um lögmenn rakin til þess að skilgreina hugtökin, þar að auki verður stefna Evrópusambandins skoðuð og þær reglur sem gerðar hafa verið í samræmi við þá stefnu. Aðaláhersla verður lögð á regluverk á Íslandi ásamt þeim aðgerðum sem gerðar hafa verið til breytinga og alþjóðavæðingar lögfræðiþjónusu í Evrópu sem og víðar, til þess að varpa ljósi á niðurstöður verkefnisins. Einnig verður farið yfir þær tillögur sem settar hafa verið fram hvað varðar æskilegt regluverk til þess að ná markmiði afregluvæðingar og alþjóðavæðingar. Þá verður í lokin stuttlega vikið að umfjöllun um mögulega þróun á umhverfi lögfræðiþjónustu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaskjal-Ellen Ósk Eiríksdóttir.pdf | 794,87 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |