Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/29895
Markmið þessa verkefnis voru að sýna hvernig megi nýta aðferðafræði BIM (e. Building Information Modeling) á íslenskum markaði með áherslu á
magntökuaðferðir, að sýna fram á gagnsemi BIM líkans og gagnagrunns þess og gera samanburð á dæmi af magntökuaðferð sem þekkist á markaðnum
í dag við þær magntökuaðferðir sem BIM studdur hugbúnaður býður upp á út frá IFC (e. Industry Foundation Class) skráarsniði. Unnið var BIM líkan af Helgafellsskóla út frá teikningum frá verkfræðistofunni VSB og arkitektalíkani með skráarsniðinu IFC frá arkitektastofunni Yrki
Arkitektar.
Niðurstöður leiddu í ljós ágæti BIM hugbúnaðar við gerð magntöku, þar sem skekkja milli magntalna út frá BIM líkani og fyrirliggjandi magntalna mældist undir 1%. Sýndu þær niðurstöður ágæti þeirra gagna sem safnað var út frá BIM líkani verkefnisins og það að BIM stuðlar að betur
upplýstum ákvörðunum allt frá upphafi verks.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BSc-Ragnar-Kaspersen-2017.pdf | 15.39 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |