Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/2995
Þessi ritgerð fjallar um tiltekna málbreytingu sem er orðin nokkuð algeng í
íslensku máli og nefnist eignarfallsflótti. Ritgerðin er að mestu fræðileg umræða um
málbreytinguna, eðli hennar og ástæður. Í byrjun verður leitast við að útskýra
hugtakið og reynt að varpa ljósi á ástæður breytingarinnar, m.a. út frá veikri beygingu
nafnorða og þáttakerfi íslenskunnar. Einnig verður fjallað um þetta með hliðsjón af
barnamáli. Að lokum verður lítil könnun lögð fyrir nokkra málhafa og niðurstöður
hennar kynntar og ræddar auk þess sem reynt verður að tengja þær við fyrri umræðu
um efnið.
Málbreytinguna má skýra að einhverju leyti út frá veikri beygingu kvenkynsorða
og að einhverju leyti út frá þáttakerfi íslenskunnar. Að auki skiptir setningafræðilegt
umhverfi töluverðu máli hvað þetta varðar, sérstaklega eignarfallsrunur því meiri líkur
virðast vera á því að málhafar samþykki nýtt eignarfall með slíkum runum eins og
niðurstöður könnunarinnar leiddu í ljós.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð Helga Eggertsdóttir - pd_fixed.pdf | 802,89 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |