is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/33786

Titill: 
  • Grálúða : veiðar, vinnsla og markaðir
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Verkefni þetta fjallar um veiðar, vinnslu og markaði grálúðu (Reinhardtius hippoglossoides). Tilgangur verkefnisins er að skoða þessa þætti ítarlega og setja upp mynd af þróun þeirra og stöðu í dag með notkun gagnagrunna. Reynt er að meta ástand stofnsins við Ísland með gögnum frá Hafrannsóknastofnun ásamt því að skoða gögn um alheimsveiðar á stofninum og veiðar á Íslandsmiðum. Þá eru einnig skoðaðar veiðar við Ísland, aflaverðmæti tegundarinnar og útflutning m.t.t. aflaverðmæta og til hvaða landa verið er að flytja afurðina. Síðan er skoðaður sá möguleiki að vinna grálúðu í landi í stað sjófrystingar og hvort það sé í raun og veru ávinningur af því.
    Helstu niðurstöður eru að stofninn og veiðar eru nokkuð stöðugar í dag. Á tímabili var nokkur óstöðugleiki í stofninum vegna mikils veiðiálags. Þetta endaði með því að takmarkanir voru settar á veiðar og kvóti á grálúðuafla. Lang algengast er að sjófrysta grálúðu. Síðustu ár hafa þó verið gerðar tilraunir til landvinnslu hér á Íslandi. Hins vegar er meðalverð fyrir sjófrysta grálúðu mun hærra en þegar hún er unnin í landi og munar tæplega helmingi á meðalverði eftir því hvor vinnsluaðferðin er notuð. Eftirspurn frá markaðslöndum er einnig mun meiri á sjófrystri grálúðu heldur en þeirri sem unnin er í landi. Grálúða er verðmætasta flatfiskategundin hér við land en aflamark er yfirleitt í kringum 10-15 þúsund tonn. Meðalverð hefur rúmlega tvöfaldast síðan árið 2007 og samhliða því hefur útflutningsverðmæti aukist töluvert. Nánast allur afli sem veiddur er við Ísland er útfluttur og lang stærsti markaðurinn er í Asíu. Helstu markaðslönd eru Japan, Kína og Tævan.

  • Útdráttur er á ensku

    The purpose of this project was to develop a simple yet clear overview of the North-Atlantic Greenland halibut stock. The project focused on the aspects of fishing, processing and marketing. An attempt was made to evaluate the stock by using data from MFRI as well as observing data regarding world fishing of the species. The markets for Greenland halibut are also observed.
    The main results are that the stock and fishery are currently somewhat stable. At times the stock was unstable because of overfishing which resulted in limitations of fishery and a quota was set on the species.
    Frozen at sea is the most common way of processing Greenland halibut. In recent years the possibility of processing Greenland halibut in processing plants has been observed and tried. Average price of Greenland halibut processed in processing plants is however
    much lower than that of frozen at sea. There is also much higher demand from markets for products frozen at sea than processed in plants.
    Average price has more than doubled since 2007 and therefore the export value has increased considerably. Nearly all catch by Iceland is exported and their biggest target market is Asia. Main exchange countries for Iceland are Japan, China and Taiwan.
    Keywords: Greenland halibut, fishing, processing, markets

Samþykkt: 
  • 19.6.2019
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/33786


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Grálúða. Veidar, vinnsla og markadir.pdf1.47 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Forsíða.pdf1.02 MBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna