Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3132
Tilgangur rannsóknarinnar var að afla upplýsinga um sjálfskoðun brjósta hjá konum ásamt því að kanna þátttöku þeirra í leghálsskoðun. Einnig var skoðað hvers vegna konur sinna þessum þáttum ekki reglulega og hvort munur er á milli tveggja fagstétta á reglulegri mætingu í leghálsskoðun og sjálfskoðun brjósta. Rannsóknaraðferðin var megindleg, lýsandi rannsókn (quantitative descriptive research) og voru þátttakendur 41 kvenkyns grunnskólakennari og 37 kvenkyns hjúkrunarfræðingar á aldrinum 20-45 ára búsettir á Akureyri. Mælitæki rannsóknarinnar var spurningalisti hannaður af rannsakendum þar sem stuðst var við fræðilegar heimildir um efnið og var svarhlutfall 93,59%. Við úrvinnslu gagna var notað tölvuforritið SPSS og Microsoft Excel. Helstu niðurstöður sýndu að 93% hjúkrunarfræðinga stunduðu sjálfskoðun brjósta reglulega en aðeins 64% grunnskólakennara og mældist marktækur munur milli fagstétta (P=0,002). Rúmlega helmingur þátttakenda framkvæmdi skoðunina á sex mánaða fresti eða oftar og sögðust flestir þátttakendur mæta reglulega í leghálsskoðun og fór meirihluti þeirra annað hvert ár. Flestum þátttakendum var sama hvort karl- eða kvenkyns læknir framkvæmdi skoðunina en rúmlega 20% þátttakenda kusu frekar kvenkyns lækni en aftur á móti kusu tæp 8% karlkyns lækni.
Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein meðal kvenna og hefur hæsta nýgengi og einnig hæstu dánartíðni. Með reglulegri sjálfskoðun brjósta er markmiðið að finna krabbamein á byrjunarstigi og auka þar með lífshorfur. Leghálskrabbamein hefur einnig háa dánartíðni meðal kvenna og eykur skipulögð leghálsskoðun líkur á að finna forstigsbreytingar, þar með er minni hætta á að frumubreytingar þróist yfir í krabbamein.
Lykilhugtök: leghálskrabbamein; leghálsskoðun; mæting; brjóstakrabbamein; sjálfskoðun brjósta; menntun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
allt_fixed(2)skemma.pdf | 1.42 MB | Opinn | Þátttaka kvenna í leghálsskoðun og regluleg sjálfskoðun brjósta: Er munur á milli fagstétta? | Skoða/Opna |