Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/30101
Lokaverkefni mitt í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands er um fjölmenningarleg verkefni Borgarbókasafnsins sem ég hef þróað í tíu ár og skiptist í greinargerð og í miðlunarhluta. Í greinargerðinni er farið yfir fjölmenningarstarf Borgarbókasafnsins, sögu þess, uppbyggingu og framtíðarsýn. Jafnframt verður fjallað um menningarhugtakið og þær miðlunarleiðir sem notaðar hafa verið í þessu lokaverkefni. Miðlunarhlutinn skiptist annars vegar í Áttavitann sem er rafræn handbók og hins vegar í ráðstefnuna Rætur og vængir. Bæði miðla fjölmenningarstarfi Borgarbókasafnsins síðastliðin tíu ár. Áttavitinn miðlar með textum, ljósmyndum og myndböndum og verður hýstur á vef Borgarbókasafnsins. Ráðstefnan Rætur og vængir, verður haldin í Veröld – húsi Vigdísar 24. og 25. maí 2018. Í greinargerðinni verður einnig farið yfir markmið Áttavitans, vinnuferlið við gerð hans, tilurð fyrrnefndrar ráðstefnu og vefinn sem henni fylgir.
My Masters Degree in Applied Studies in Culture and Communication at the University of Iceland is about the multicultural projects of Reykjavik City Library that I have developed the last 10 years. It is divided into two parts. The first part is this thesis and the second part is a digital handbook, also named The Compass, and the conference, Roots and Wings. Both are about the multicultural projects of Reykjavik City Library. In the thesis, I will also discuss the concept of culture and the choice of applied communication in my Masters Project.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Þegar landslagið breytist-MA ritgerð.pdf | 2.08 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing Krv.pdf | 111.81 kB | Lokaður | Yfirlýsing |