Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/30125
Þessi ritgerð er lokaverkefni til BA-prófs í félagsráðgjöf við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Markmið ritgerðarinnar er að kanna þverfaglegt samstarf fyrir þolendur ofbeldis í nánum samböndum líkt og úrræðið Bjarkarhlíð. Skoðað verður hlutverk Bjarkarhlíðar og uppbygging verkefnisins hér á landi. Fjallað er sérstaklega um hugmyndafræði Family Justice Center en hún er lögð til grundvallar starfinu í Bjarkarhlíð. Þá er fjallað um um hlutverk félagsráðgjafa í Bjarkarhlíð og hvernig þeir vinna með þolendum ofbeldis. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar benda til að hægt sé að ná mjög góðum árangri með þolendum ofbeldis í þverfaglegu samstarfi sem byggir á líkani Family Justice Center, bæði með vitundarvakningu í samfélaginu og með því að stuðla að valdeflingu þolenda ofbeldis. Aðsókn og umfang starfsins í Bjarkarhlíð hefur verið meiri en búist var við og miðstöðinni hefur verið vel tekið, bæði hjá þjónustuþegum og fagaðilum. Þó að Bjarkarhlíð nýtt úrræði þá er þegar ljóst að þessi viðbót við úrræði fyrir þolendur ofbeldis hér á landi er mikilvæg.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
BA ritgerð_HEILD.pdf | 466.01 kB | Open | Complete Text | View/Open | |
Yfirlýsing.pdf | 115.1 kB | Locked | Yfirlýsing |