Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/30128
Tilgangurinn með þessari ritgerð er að komast að niðurstöðu um hvort það sé rétt að ríkið og yfirvöld skipti sér af athöfnum einstaklings sem varða aðeins hann sjálfan. Í þessu tilviki er sú athöfn neysla á kannabis. Frelsisregla Johns Stuarts Mills er notuð til þess að varpa ljósi á einstaklingsfrelsi. Sem manneskja, mátt þú gera hvað sem þú
vilt við þinn líkama og sál, á meðan þú skaðar ekki aðra?
Þá er spurning hvort lög um fíkniefni ættu að samræmast frelsisreglunni. Það er að segja, ætti að lögleyfa kannabis á Íslandi? Eða er nóg að gera neyslu og vörslu efnisins refsilausa?
Aðferðirnar, sem notaðar voru í ritgerðinni, voru bæði megindlegar og eigindlegar. Gögnum af ýmsu tagi voru safnað um kannabis eins og rannsóknir fræðimanna, bæklingar, kannanir, skýrslur og greinar á internetinu. Einnig voru tekin viðtöl við þrjá neytendur kannabiss til þess að varpa ljósi á hvaða afleiðingar það hefur á líf manna
ef þeir eru teknir með kannabisefni á sér eða á heimili sínu, og hvað lögreglu ber þá að gera á Íslandi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lögleyfing Kannabis Lokaritgerð til BA gráðu í stjórnmálafræði.pdf | 1,24 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
skemman eyðublað.pdf | 21,73 kB | Lokaður | Yfirlýsing |