Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/30151
Markaðsstarf íþróttafélaga. Hverjir eru sóknarmöguleikar Fimleikafélags Hafnarfjarðar?
Markmið þessarar ritgerðar var að kanna hvernig markaðsstarfsemi innan íþróttafélaga er frábrugðin markaðsstarfi hefðbundinna fyrirtækja. Áhugi á íþróttum fer ört vaxandi í heiminum og þar með talið á Íslandi, þá sérstaklega eftir velgengni landsliða okkar á stórmótum á síðastliðnum árum. Til þess að nálgast viðfangsefnið var byrjað á að skoða fræðin á bakvið markaðsstörf. Gerð var skýring á íþróttamarkaðsfræði og fær lesandi að kynnast sögu Fimleikafélags Hafnarfjaðar eins sigursælasta íþróttafélags landsins. Áhersla var lögð á markaðsstefnu, markaðsáherslu og vörumerkjastjórnun íþróttafélaga til þess að fá betri mynd á starfsemi fyrirtækja á þessum markaði. Til að fá betri innsýn í þennan áhugaverða heim var tekið viðtal við Birgi Jóhannsson, framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar Fimleikafélags Hafnarfjarðar og Axel Guðmundsson, verkefnastjóra deildarinnar. Helstu niðurstöður voru að markaðssetning íþróttafélaga er frábrugðin markaðssetningu hefðbundinna fyrirtækja á þann hátt að hægt er að skipta henni og neytendahóp hennar í tvennt. Einnig kom í ljós að Fimleikafélag Hafnarfjarðar á sóknarmöguleika í netverslun og markaðssetningu á samfélagsmiðlum, ásamt því að eiga það sameiginlegt með öðrum íþróttafélögum hérlendis að notfæra sér leikmenn og aðrar fyrirmyndir betur í markaðsstarfi. Ljóst er að FH hefur komið mörgum leikmönnum bæði úr handbolta og fótbolta út í atvinnumennskuna og þarf félagið að tengja sig betur við þá styrkleika og ímynd sem það hefur til þess að ná til markhópa sinna.
| Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
|---|---|---|---|---|---|
| Markaðsstarf íþróttafélaga - Lokaskil.pdf | 538,1 kB | Open | Complete Text | View/Open | |
| Yfirlýsing - Úlfar K. Svansson.pdf | 142,95 kB | Locked | Yfirlýsing |