Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/30296
Tilgangurinn með þessari ritgerð er að skoða og meta hagkvæmni séreignarsparnaðar og
hvernig úrræðið Fyrsta fasteign nýtist ungu fólki þegar kemur að því að festa kaup á
húsnæði. Síðustu ár hefur fjöldi þeirra sem býr í leiguhúsnæði eða í foreldrahúsum aukist
töluvert þar sem mikill framboðsskortur er á fasteignum. En hvernig er hægt að nýta
séreignarsparnað til fasteignakaupa? Til að byrja með er fjallað almennt um
séreignarsparnað og þá kosti sem hann hefur upp á bjóða en það leiddi í ljós að töluverður
ávinningur hlýst af því að greiða í séreignarsjóð yfir starfsævina. Þessi ávinningur
endurspeglast meðal annars í ávöxtun, mótframlagi vinnuveitanda og skattalegu hagræði.
Í dag eru tvenns konar úrræði í boði á nýtingu séreignarsparnaðar, Séreign inn á lán og
Fyrsta fasteign. Það fyrra er þó aðeins tímabundið en við því tekur Fyrsta fasteign sem
einblínir á þá sem ekki hafa átt fasteign áður. Fyrsta fasteign býður upp á þrjár leiðir sem
hægt er að velja úr: sparnaðarleið, höfuðstólsleið og blandaða leið. Leiðirnar hafa allar
sína kosti og er úrræðið stórt skref í rétta átt þegar kemur að því að leysa húnsæðisvanda
ungs fólks. Mikilvægt er þó að skoða hvaða áhrif það hefur á ellilífeyrinn að nýta
séreignarsparnaðinn fyrr á lífsleiðinni. Niðurstöður benda til þess að ekki komi að sök að
nýta séreignarsparnað í úrræðið Fyrsta fasteign og aðstoðar það fólk við að koma undir
sig fótunum og byggja undir sína fjárhagslegu stöðu. Því ætti að leggja áherslu á að kynna
þau úrræði sem eru í boði fyrir ungu fólki svo það geti byrjað snemma að huga að sparnaði
fyrir framtíðina.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ávinningur séreignarsparnaðar og úrræði Fyrsta fasteign.pdf | 1,5 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing.pdf | 104,38 kB | Lokaður | Yfirlýsing |