Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/30332
Skuldabréfavafningar eru fjármálagjörningar sem uxu hratt í vinsældum frá lokum seinustu aldar og að aðdraganda hrunsins 2008. Í þessu lokaverkefni voru skuldabréfavafningar skoðaðir með tilliti til þeirrar kerfislægu áhættu sem þeir geta myndað, Basel reglugerðirnar og hvaða áhrif þessar reglugerðir höfðu á þróun skuldabréfavafninga allt frá Basel I upp í Basel III. Að lokum fjallaði ég um Basel III á Íslandi og verðbréfun á Íslandi, þá bæði fyrir og eftir hrun.
Markmið þessa lokaverkefnis var að svara spurningunni: hvaða áhrif hafa Basel reglugerðirnar á kerfislæga áhættu af völdum skuldabréfavafninga?
Helstu niðurstöður leiddu í ljós að Basel I og Basel II áttu stóran þátt í vexti skuldabréfavafninga fram að hruni. Basel III hafði þau áhrif að bankar liggi á mun meira lausu fé í dag en fyrir hrun og því eru talsvert minni líkur á lausafjárvanda. Vísbendingar eru um að NSFR hafi myndað hjöðnun á vexti skuldabréfavafninga eftir hrun.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
ritgerð-lokaskjal.pdf | 895.09 kB | Open | Complete Text | View/Open | |
[Untitled].pdf | 345.91 kB | Locked | Yfirlýsing |