Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/30382
Þessi ritgerð fjallar um helstu áskoranir tónlistarframleiðenda við að koma sér á framfæri á nútímamarkaði. Tekin voru viðtöl við þrjá einstaklingar sem starfa í þessum geira, þau greind og túlkuð til að öðlast skilning á upplifun og reynslu viðmælenda. Viðmælendur rannsóknarinnar starfa allir sem tónlistarframleiðendur og voru því vel í stakk búnir að varpa ljósi á rannsóknarefnið. Tveir af þremur viðmælendum hafa starfað erlendis og hafa þeir tekist á við ýmsar áskoranir þegar kemur að því að koma sér á framfæri. Þeir eru ólíkir á sinn hátt en eiga þó margt sameiginlegt. Á markaði tónlistarframleiðenda ríkir mikil samkeppni og margar leiðir eru færar til að koma sér á framfæri. Einstaklingar í atvinnugreininni mæta miklum áskorunum þegar þeir ætla að koma sér áfram á markaði. Mikil óvissa fylgir því umhverfi sem tónlistarframleiðendur starfa í þar sem tekjustreymi er óstöðugt og oft á tíðum kostnaður hár. Vinnuumhverfi tónlistarframleiðenda er ófullnægjandi á margan hátt þegar kemur að samningagerð, lagalegum álitamálum, fjárhagslegri umgjörð og vernd í starfi. Umhverfi og öflugt tengslanet eru undirstaða velgengni í bland við gæði þeirrar vöru sem tónlistarframleiðendur selja. Mikilvægt er að finna leiðir til að skera sig úr í harðri samkeppni og þá geta gæði vörunnar skipt sköpum ef einstaklingur á að hafa atvinnu af greininni.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaskjal BS RITGERÐ GKJ .pdf | 572.5 kB | Open | Complete Text | View/Open | |
Skemman_yfirlysing_1.pdf | 148.59 kB | Locked | Yfirlýsing |