Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/30386
Inngangur: Sarkmein er bæði sjaldgæfur og margbreytilegur hópur illkynja meina sem herjar á stoðkerfi einstaklingsins. Vegna fátíðni og margbreytileika þessara meina hafa sérstakar meðferðarstofnanir/-hópar verið settar á laggirnar með það að leiðarljósi að stuðla að bættri meðferð sjúklinga með sarkmein og ekki síst auka fræðilega og klíníska þekkingu á sarkmeinum. Sérstakt meðferðarteymi Landspitalans IceSG hefur verið starfandi síðan 2005 og hefur komið að stórum hluta meðferða og þar að auki haldið utan um skráningu á öllum meðferðartilfellum sarkmeina hér á landi frá stofnun þess. Markmið þessar verkefnis er að varpa ljósi á þann hugsanlega ávinning sem orðið hefur í meðferð sarkmeina, hér á landi, með tilkomu IceSG.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin byggir á gagnabanka sem endurspeglar öll tilfelli sarkmeina sem greinst hafa milli 1986-2015 en þessi gögn byggðu á upplýsingum frá Krabbameinsskrá Íslands og Sögukerfi Landspítalans. Þær upplýsingar sem lágu fyrir voru eftirfarandi: kyn, greiningaraldur, staðsetning æxlis, meingerð æxlis, dánardagur og upplýsingar sem snéru að greiningum og meðferðum sarkmeinanna þ.e. hvers konar sýnatöku var beitt og hvers konar meðferð viðkomandi gekkst undir. Kaplan-Meier og Cox-greiningu var beitt til að ákvarða lifun þýðisins. Skilgreindir voru þrír hópar til samanburðar: Einstaklingar sem hlutu meðferð á vegum IceSG, tilfelli greind milli 1986-1999 og að lokum þau tilfelli sem greindust milli 2000-2015.
Niðurstöður: Af þeim 284 sem greinst höfðu með sarkmeini hér á landi milli 1986-2015 höfðu 75 farið í gegnum sarkmeinateymi Landspítalands IceSG. Ekki greindist marktækur munur á meðalaldri og kynjadreifingu milli hópanna þriggja. Munur sést á hlutfalli tilfella sem styðst einungis við myndgreiningu: 28 tilfelli (23,9%) greind milli 1986-1999 styðjast einungis við myndgreiningu samanborið við 9 tilfelli (9,8%) greind milli 2000-2015 og í 0,0% tilfella meðal IceSG-hópsins. Marktækur munur er á aðgerðarformi milli hópanna þriggja en 29,5% einstaklinga á vegum IceSG gangast undir stúfhöggsaðgerð samanborið við 19,1% þeirra sem greindir eru milli 1986-1999 og 15,3% milli 2000-2015. Marktækur munur fæst í lifun ef borin er saman IceSG-hópurinn við önnur tilfelli sarkmeina hér á landi (p = 0,042). Að sama skapi sést marktækur munur í lifun milli hópanna tveggja ef leiðrétt er fyrir bæði greiningaraldri og undirflokkum sarkmeina (p = 0,039) þar 95% sem öryggisbil áhættuhlutfallsins spannar frá 1,028- 2,882.
Ályktun: Greining og meðferðarform virðist að einhverju leiti vera frábrugðið meðal einstaklinga á vegum IceSG samanborið við önnur tilfelli sarkmeina hér á landi. Að sama skapi má leiða líkur að því lifun sjúklinga með sarkmein, hér á landi, hafi batnað með tilkomu sérstaks meðferðarteymis sarkmeina IceSG.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Daniel Geir Karlsson BSritgerð.pdf | 1,5 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
lokaverkefni.pdf | 294,24 kB | Lokaður | Yfirlýsing |