Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/30491
Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til B.A. prófs í þýsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Erlendir ferðamenn hafa komið til Íslands í áranna rás en síðustu árin hefur þeim fjölgað mjög mikið. Ástæður þessarar fjölgunar eru af ýmsum toga. Ein þeirra gæti stafað af mikilli umfjöllun um Ísland í kjölfar ákveðinna atburða sem hafa átt sér stað á undanförnum árum og ennfremur vaxandi samkeppni flugfélaga sem bjóða upp á ódýrari flugfargjöld til Íslands. Ferðaþjónustan hefur þar af leiðandi vaxið ört sem atvinnugrein og er nú orðin stærsta útflutningsgrein landsins. En hvaðan kemur eiginlega hugmyndin að Íslandsferð og hvaða aðdráttarafl hefur Ísland í augum erlendra ferðamanna? Geta hugsanlega atburðir eins og efnahagskreppa, eldgos eða jafnvel árangur fótboltalandliðs lítillar eyju í Atlantshafinu á stóru fótboltamóti vakið áhuga þeirra á landinu og haft áhrif á ákvörðunina að ferðast til Íslands? Þessum spurningum velti ég upp í ritgerð minni en hún fjallar um áfangastaðinn Ísland þar sem einblínt er á þýska, svissneska og austurríska ferðamenn og þeirra þátta og atburða sem hafa áhrif á þeirra ákvörðunartöku að ferðast til Íslands.
Ritgerðin skiptist í 5 kafla. Í fyrsta kafla er inngangurinn. Annar kafli skiptist upp í tvo kafla. Sá fyrri fjallar um landið Ísland, m.a. frá jarðfræðilegu sjónarhorni og seinni kaflinn, sem skiptist niður í þrjá undirkafla, þar sem gefið er stutt yfirlit yfir sögu landsins frá landnámi til lýðveldisstofnunar, menningu og hesta. Í þriðja kafla er annars vegar sagt frá ferðaþjónustu á 19.öld, þ.a.s. þegar farið var að tala um Ísland sem ferðamannaland og hinsvegar ferðaþjónustunni eins og hún blasir við okkur í dag. Í fjórða kafla er greint frá atburðum síðustu ára og hugsanlegum áhrifum þeirra á auknum áhuga ferðamanna á Íslandi og á ferðalögum þeirra hingað. Þessir atburðir eru: Efnahagshrunið haustið 2008, eldgosið í Eyjafjallajökli vorið 2010, markaðsátakið Inspired by Iceland, þátttaka Íslands sem heiðursgests á Bókamessunni í Frankfurt haustið 2011 og að lokum Evrópukeppnin í fótbolta sumarið 2016. Fimmti og síðasti kaflinn fjallar um könnun sem gerð var fyrir Ferðamálastofu sumarið 2016 þar sem teknar eru fyrir niðurstöður þýskra, svissneskra og austurrískra ferðamanna á áhrifaþáttum og meðmælum varðandi Íslandsdvöl þeirra.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA Aldis Brynja Schram.pdf | 377,8 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Aldís yfirlýsing.jpg | 179,2 kB | Lokaður | Yfirlýsing | JPG |