is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Auðlinda- og umhverfisdeild (2017-2019) > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/30721

Titill: 
  • Staðarvalsgreining fyrir þjóðarleikvang innanhússíþrótta á höfuðborgarsvæðinu
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Staðarvalsgreining er mikilvægt fyrsta skref í skipulagsferlinu þegar velja á rýmisfrekum mannvirkjum stað innan þéttbýlis. Það á sérstaklega við um íþróttamannvirki en knattspyrnuleikvangar og stórar íþróttahallir þurfa rúmgóð svæði undir starfsemi sína. Slík svæði er oft eingöngu að finna á borgarjaðri þéttbýlissvæða en á höfuðborgarsvæðinu, einkum í Reykjavík, eru nokkur góð uppbyggingarsvæði innan borgarinnar.
    Eftirfarandi rannsókn er greining á hentugum svæðum fyrir nýjan þjóðarleikvang innanhúsíþrótta á höfuðborgarsvæðinu. Stuðst er við hugmyndafræðina um staðarval og er gerð staðarvalsgreining til að meta ákjósanlegustu staðsetningarkostina. Gerð er grein fyrir því hvernig ýmsir þættir í borgarumhverfinu hafa áhrif á staðarval íþróttahalla og hvernig vægi þeirra er metið.
    Niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að ákjósanlegustu staðarvalskostirnir fyrir nýjan þjóðarleikvang innanhúsíþrótta eru að finna í Reykjavík, raunar einungis í tveimur hverfum borgarinnar, þ.e. í Laugardal og Háaleiti. Einn staðarvalskostur utan Reykjavíkur, telst nægjanlega fýsilegur, en hann er að finna í Garðabæ, á jaðri þéttbýlisins.

Samþykkt: 
  • 7.6.2018
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/30721


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Þórður Már fyrir skemmu.compressed.pdf8.06 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna