Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/30728
Króktún 2
Lokaverkefnið byggist á að hanna og teikna tvílyft einbýlishús. Sökklar,botnplata,útveggir og burðarplata milli hæða eru staðsteypt en efri hæð er heðbundið timburhús með timbur valmaþaki. Steyptir útveggir eru einangraðir beggja vegna og timburútveggir milli stoða. Þak er létt einangrað milli togbanda og milli þaksperra. Útveggir eru klæddir loftræstri álklæðningu.
Teikningasettið inniheldur, uppdráttaskrá, skráningartöflu, aðaluppdrætti, byggingauppdrætti, burðavirkisuppdrætti, deiliuppdrætti og lagnauppdrætti.
Skýrslan inniheldur m.a. verklýsingar, magn- og tilboðsskrá og lagna-, burðarþols- og varmatapsútreikinga ásamt hljóðvistarhugleiðingum og hæðar, mæliblöðum sem og byggingaleyfisumsókn og gátlista.
Verkefnið er unnið með hliðsjón af byggingareglugerð 112/2012