is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/30748

Titill: 
  • Áhrif mismunandi efna á frumusprengingar í þorskroði
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Útdráttur er á ensku

    Kerecis produces medical devices from the Atlantic cod (Gadus morhua) skin. Kerecis products, the KerecisTM Omega3 - acellular fish skin grafts, are used for surgical applications and wound healing. The cod skin, which is cleaned and stripped from all cells, preserves the native structure which the human cells can grow into. Pressure ulcers and other chronic wounds, are hard to treat and affect quality of life. When the fish skin is placed in the wounds cells grow into the graft facilitating the formation of a new tissue and healing the wound.
    Four types of chemical mixtures were made, all based on the original recipe but one variable changed. The aim of the project was to determine the value of each chemical in the cell stripping process.

  • Kerecis hefur unnið sáragræðlinga frá árinu 2013. Lækningartæki Kerecis er vefjaviðgerðartækni sem notuð er í skurðaðgerðum og á þrálát sár. Lækningavörurnar kallast KerecisTM Omega3 og eru úr affrumuðu þorskroði. Roðið er hreinsað af öllum frumum og frostþurrkað. Eftir stendur affrumað roð með heila og varðveitta þrívíddarbyggingu sem frumur geta vaxið inn í. Græðlingarnir eru því ekki teknir af eins og sáraumbúðir almennt heldur verða hluti af húðinni. Engir sameiginlegir smitsjúkdómar eru þekktir milli þorska og manna og því er hráefnið tilvalið til notkunar í læknisfræði. Til eru aðrir græðlingar unnir úr spendýrum en meiri sóun fylgir framleiðslu á þeim enda roðið algjör aukaafurð. Í samanburðar rannsóknum á græðlingum úr spendýravef og roði hefur roðið einnig sýnt betri árangur.
    Í verkefninu voru prófaðar fjórar efnablöndur sem ekki hafa verið rannsakaðar áður. Er um að ræða breyttar uppskriftir frá því sem Kerecis notar við framleiðslu. Einnig var útbúið jákvætt og neikvætt viðmið. Tilgangurinn var að meta framlag einstakra efna á frumusprengingar í roðinu.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til 09.04.2023.
Samþykkt: 
  • 11.6.2018
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/30748


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Frumusprengingar.i.rodi-lokaverkefni.líftækni.B.S..pdf4.29 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Lokaverkefni heimildaskrá.pdf160.74 kBOpinnHeimildaskráPDFSkoða/Opna
lokaverkefni-Efnisyfirlit.pdf13.58 kBOpinnEfnisyfirlitPDFSkoða/Opna