Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/30765
Meistaraverkefnið Aftur til framtíðar fjallar um námskeið fyrir ungmenni í 8.-10. bekk, þar sem er blandað saman listkennslu, safnafræðslu og sjálfbærnimenntun. Markmiðið með verkefninu er að efla vitund ungmenna um málefni sjálfbærni, vekja áhuga þeirra á íslenskum menningararfi og þjálfa þau í að beita gagnrýnni hugsun og menningarlæsi í tengslum við listsköpun. Námskeiðið var prófað á stúlknahóp úr 8. bekk Hagaskóla og unnu þær verkefni út frá heimsókn á Þjóðminjasafnið þar sem komið var inn á hugmyndir um sjálfbærni, þverfagleg vinnubrögð og skapandi listræna hugmyndavinnu. Verkefnið fór fram í þremur kennslustundum. Í fyrsta tíma kynntust nemendur grunnhugmyndum um sjálfbærni og menningararf í gegnum verk nokkurra listamanna og hönnuða sem hafa unnið markvisst með þau hugtök. Í öðrum tíma var Þjóðminjasafnið heimsótt, þar sem menningararfurinn var skoðaður út frá sjálfbærni og lífshættir fólks á fyrri öldum notaðir til að varpa gagnrýnu ljósi á lífshætti fólks í dag. Nemendur unnu skissu- og hugmyndavinnu á safninu fyrir lokaverkefni námskeiðsins, en það snerist um að velja eitt atriði á safninu og sjá hvernig væri hægt að þróa það á skapandi hátt fyrir framtíðina. Í þriðja og síðasta tíma kláruðu nemendur hugmyndir og skissur að lokaverkefum og kynntu fyrir bekknum. Stúlkurnar unnu einnig hópverkefni og tóku þátt í umræðum. Á námskeiðinu var ekki gerð krafa um fullklárað lokaverkefni, heldur var megináhersla lögð á sköpunarferli, hugmyndavinnu og samtal.
The master’s project Back to the Future focuses on a course for 8th to 10th graders that offers a mix of arts education, museum and sustainability education. The goal of the project is to raise young people’s awareness of the issues of sustainability, spark their interest in Icelandic cultural heritage and train them in applying critical and cultural literacy to the artistic process. The project was tested on a group of girls from 8th grade who worked on an assignment based on a visit to the National Museum of Iceland, involving ideas about sustainability, multi-disciplinary work and artistic creation. The project was completed over a duration of three classes. In the first class, the students were introduced to the concepts of sustainability and cultural heritage through the works of artists and designers that have based their work on those two concepts. The second class was a field trip to the National Museum, where the heritage exhibit was observed from the perspective of sustainability and information on the living habits of older generations was used to shine a critical light on the way we live today. Students worked on sketches and ideas for the course’s final project, which was to select an item or concept from the museum and create a new version of it for the future. In the third and final class of the course, students finished their ideas and sketches and introduced them to the class. They also worked on a group assignment and participated in a debate. Students were not expected to deliver a finished version of their final project, but instead the emphasis was on the creative process and dialogue.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Aftur til framtidar.pdf | 30.73 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |