Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/30828
Rannsókn þessi fjallar um hversu vel statt Ísland er fyrir komu sjálfstýrðra bíla. Rannsakendur telja að það séu fimm atriði sem þurfa að vera til staðar svo að sjálfstýrðir bílar muni koma til Íslands á næstu árum. Þau atriði eru innviðir, viðbúnaður stjórnvalda, trú neytenda á tækninni, vilji fyrirtækja til að nota hana á Íslandi og að tæknin virki við íslenskar aðstæður. Rannsakendur byrjuðu á því að safna saman helstu heimildum um sjálfstýrða bíla og þau svið sem þeir snerta. Síðan voru tekin djúpviðtöl við helstu sérfræðinga og hagsmunaaðila sem tengjast þeim sviðum sem sjálfstýrðir bílar snerta. Jafnframt voru gerðar tvær neytendakannanir. Þessir þrír þættir voru teknir saman í umræður og útfrá þeim komu niðurstöður sem tóku mið af þeim fimm þáttum sem rannsakendur telja að þurfi að vera til staðar til þess að sjálfstýrðir bílar komi til Íslands
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Eiga sjálfstýrðir bílar framtíð á Íslandi.pdf | 2,12 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |