is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/30878

Titill: 
  • Markaðsrannsókn fyrir Ferðamálastofu Kerteminde í Danmörku : eru íslenskir ferðamenn ákjósanlegur markhópur?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Umfjöllunarefni þessa verkefnis er markaðsrannsókn fyrir áfangastaðinn Kerteminde í Danmörku. Meginmarkiðin eru tvö, að athuga hvort íslenskir ferðamenn séu ákjósanlegir viðskiptavinir ferðaþjónustunnar í Kerteminde og ef svo er, að athuga hvaða markhóp áfangastaðurinn ætti að beina athygli sinni að.
    Verkefninu má skipta niður í fjóra meginhluta. Fyrst er ferðaþjónusta, ferðamaður og áfangastaður skoðaður og sett í samhengi við áfangastaðinn Kerteminde. Í hluta tvö er farið í markaðssetningu og lífstílsgreiningu með tilliti til áfangastaðarins. Þriðji hluti fjallar um íslenska ferðamenn, fjölda þeirra og ferðavenjur. hjólreiðar á Íslandi eru skoðaðar og því næst hjólaferðir erlendis. Í fjórða hluta er farið yfir þá aðferðafræði sem notuð var við rannsóknir höfundar og gerð verkefnisins sem og niðurstöður kynntar. Að lokum eru umræður og lokaorð sett fram.
    Rannsókn höfundar var þríþætt, greining á fyrirliggjandi opinberum gögnum, viðtöl voru framkvæmd við 3 aðila og tvær mismunandi spurningarkannanir lagðar fyrir sitt hvorn hópinn; ferðaskrifstofur á Íslandi sem selja hjólaferðir annars vegar og hjólreiðafólk á Íslandi hins vegar.
    Niðurstöður verkefnisins benda til þess að Kerteminde sé raunverulegur kostur sem áfangastaður fyrir íslenska ferðamenn. áfangastaðurinn hefur aðdráttarafl, aðstöðu og aðgengi sem fellur vel að Íslendingum og sérstaklega ætti Kerteminde að beina athygli sinni að íslensku hjólreiðafólki.
    Lykilorð:
    Danmörk, Kerteminde, Áfangastaður, Íslenskir ferðamenn, Hjólaferðir

  • Útdráttur er á ensku

    The topic of this bachelor project is a market survey for Kerteminde in
    Denmark. The main target is to investigate if Icelandic tourists would be ideal for the Kerteminde tourism and if they are, research which target groups should Kerteminde focus on.
    The project can be divided into four main sections. First general about
    tourism linked to the destination Kerteminde, second is about marketing and lifestyle, third covers Icelandic tourists, the cycling scene in Iceland and bicyle tours overseas. Forth section describes the methodology used in author’s research, presentation of the results and finally discussions and closing words are presented.
    The investigation and research was three-fold, analysis of available public data, interviews were conducted with 3 parties and two different questionnaires were submitted for each group; travel agencies in Iceland who sell bicycle tours overseas on the one hand and Icelandic cyclist on the other. The results of the project indicate that Kerteminde is well suited destination with attractions, amenities and access and that there is in fact a place for Kerteminde as a destination in the Icelandic tourist market and they’re target group should be Icelandic cyclists.
    Keywords:
    Denmark, Kerteminde, Destination, Icelandic tourists, Bicycle tours

Samþykkt: 
  • 11.6.2018
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/30878


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Kerteminde-markaðsrannsóknFreydísHebaKonráðsdóttir-BS.pdf1,37 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna