is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/30884

Titill: 
  • Kennitöluflakk : í ljósi siðferðis og ábyrgðar atvinnulífs
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar rannsóknar var tvíþætt. Fyrst var að skoða fyrirbærið kennitöluflakk í ljósi siðfræðikenninga. Kennitöluflakk er misnotkun á reglu um takmarkaða ábyrgð í hlutafélögum og felur yfirleitt í sér að eignum er komið undan í nýtt félag áður en það gamla fer í gjaldþrot.
    Siðfræðileg greining staðfesti með óyggjandi hætti að kennitöluflakk er siðlaust. Frekari greining leiddi einnig í ljós að hagsmunaaðilar, þar á meðal aðilar atvinnulífsins, bera óbeina siðferðilega ábyrg og ættu að leggja áherslu á að stoppa athæfið.
    Seinna markmiðið var að kanna viðhorf og reynslu stjórnenda leiðandi fyrirtækja í atvinnulífi á Íslandi, til að skoða hvort þeir væru of umburðarlyndir gagnvart kennitöluflakki. Spurningalisti var sendur til stjórnenda þeirra fyrirtækja sem tilheyrðu hvort tveggja; lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki og lista 300 stærstu fyrirtækja. Meginniðurstöður voru þær að stjórnendur hafa mjög neikvæð viðhorf til kennitöluflakks, um þriðjungur þeirra taldi fyrirtækin hafa borið skaða vegna samkeppni við fyrirtæki í kennitöluflakki og yfir 70% sögðu fyrirtækin hafa tapað viðskiptakröfum vegna þess. Yfir helmingur fyrirtækjanna höfðu neitað viðskiptasambandi vegna gruns um kennitöluflakk, oftast vegna fyrri reynslu af sama aðila.
    Samkvæmt gögnum hafa ýmsir hagsmunaaðilar mótmælt opinberlega og þannig reynt að þrýsta á yfirvöld að gera viðeigandi lagabreytingar til að stemma stigum við kennitöluflakki. Meðal þeirra eru Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins. Því væri ósanngjarnt að álykta að fyrirtæki hafi átt að gera meira til að hindra kennitöluflakk með opinberum mótmælum. Aftur á móti, þá mætti skoða leiðir til að sniðganga almennt fyrirtæki og stjórnendur sem tengjast kennitöluflakki, þá yrði það ef til vill minna eftirsóknarvert.

  • Útdráttur er á ensku

    The purpose of this study was twofold. The first was to make a theoretical link between ethical theories and illegal phoenix activity, a common phenomenon in Iceland. Phoenix activity is a misuse of the rule of limited liability and happens typically when ownership of assets is transferred to a new company before bankruptcy.
    Ethical analysis results in a definite confirmation that phoenix activity is immoral. Further analysis also indicates that stakeholders, other companies included, have an undirect ethical responsibility, and should put effort into trying to stop this activity.
    The second purpose was to research the attitudes and experience of
    managers of leading companies in Iceland, in order to find out if they have too much tolerance toward illegal phoenix activity. A questionnaire was sent to all companies that belonged to both; the strongest in Iceland list by Creditinfo and a list of 300 largest companies. Primary results indicate that managers have very negative attitudes towards phoenix activity, about third of the managers said that their company had been competitively impaired by it, more than 70% said that they had lost receivables because of it. More than half of the companies have denied business on the basis of suspicion of phoenix activity, most often because of experience of the same company or person.
    According to data, then various stakeholders have protested publicly,
    trying to push government to make appropriate law changes to prevent
    phoenix activity. Amongst those are the Federation of Icelandic Industries, and the Confederation of Icelandic Enterprice, a service organization for Icelandic businesses. It is therefor unfair to draw the conclusion that companies should have done more to stop the activity by public protest. On the other hand, it could be considered to ignore businessess or owners in general that are related to phoenix activity and make it less desirable.

Samþykkt: 
  • 11.6.2018
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/30884


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MS skyrsla kennitoluflakk.pdf1.43 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna