Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/30897
Eftirfarandi rannsóknaráætlun er lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur áætlunarinnar er að undirbúa rannsókn sem skoðar reynslu einstaklinga með fíkniröskun af vímuefnaneyslu, stimplun og fordómum. Fíkniröskun er mikil heilsufarsógn hér á landi sem og annarsstaðar. Konur eru í sérstökum áhættuhópi sem og einstaklingar með ADHD og þeir sem hafa lent í áföllum af ýmsu tagi. Vímuefnaneytendur eru líklegir til að vera með tvíþáttagreiningu, þar sem þeir glíma við fíkniröskun og geðsjúkdóm samtímis. Einstaklingar sem kljást við fíkniröskun þurfa oft að standa í mikilli baráttu við kerfið. Úrræðaleysi er ríkjandi hér á landi og vímuefnaneytendur mæta oft fordómum. Það gerir mörgum erfitt fyrir að sækja sér aðstoð auk þess sem það getur haft neikvæð áhrif á líðan þeirra og bataferli. Stuðst verður við fyrirbærafræðilega rannsóknaraðferð Vancouver-skólans og eigindleg viðtöl notuð. Með rannsókn þessari verður leitast við að svara rannsóknarspurningunni „Hver er reynsla einstaklinga með fíkniröskun af vímuefnaneyslu, stimplun og fordómum?“.
Von okkar er sú að þessi rannsókn varpi frekara ljósi á stöðu vímuefnaneytenda í samfélaginu og styðji við umræður sem myndast hafa undanfarið varðandi úrræðaleysi fyrir þennan hóp sem og að minnka fordóma sem enn eru ríkjandi bæði í samfélaginu og heilbrigðiskerfinu. Lykilhugtök: fíkniröskun, vímuefnaneysla, stimplun, fordómar.
This research proposal is a final thesis to a B.S. degree in nursing science at the University of Akureyri. The proposal purpose is to prepare a study which demonstrates the life experiences of individuals with substance use disorder on addiction, stigma and prejudice. Substance use disorder is a very serious health crisis both in Iceland and elsewhere in the world. Women are at increased risk of substance abuse along with individuals with ADHD and those who have adverse childhood experiences such as violence and abuse. Dual diagnosis among individuals with substance use disorder is very common. Individuals with substance use disorder often need to battle with the healthcare system. There are long waiting lists at every treatment facility in Iceland. These people often experience stigma and insensibility from the community as well as healthcare professionals which makes it difficult for them to get the help they need and can affect their well-being and recovery.
For this research we will use qualitative interviews built on the Vancouver-school model in phenomenology. The research question is ,,What are the experiences of individuals with substance use disorder on addiction, stigma and prejudice?”
Our hope is that this thesis will shed a light on the status of substance abuse in the society and the lack of appropriate resources for this group.
Keywords: substance use disorder (SUD), addiction, substance abuse, stigma.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS ritgerð - lokaútgáfa.pdf | 532,5 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |