Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/30922
Slóð skemmtigarða og gleðilegar minningar frá Hveragerði eru mörgum hugstæðar. Markmið verkefnisins er að endurskapa þessar minningar og skapa nýjan áningarstað í Hveragerði. Með aðsetri fyrir sirkus- og sviðslistamenn er hægt að endurskapa minningarbanka fólks um Hveragerði og styrkja bæjarfélagið með þeirri tegund afþreyingar sem það er þekkt fyrir. Byggingin liggur á lóðarmörkum Eden reitsins og leikhússins sem umlykur núverandi hús á lóðinni og myndar jafnframt góða tengingu við verðandi íbúahverfi á Eden lóðinni.
Á milli bygginga myndast sveigjanleg útirými sem eru margbreytileg eftir árstíðum. Þau nýtast öllum og staðurinn verður aftur líflegur og fjölbreytilegur áningastaður bæjarbúa og annarra gesta.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
AndreaSif-Greining.pdf | 40,07 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |