Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/30924
Gróðurhúsin hafa lengi verið ímynd Hveragerðisbæjar. Undanfarna áratugi hefur ylræktarstarfsemin þó dregist verulega saman og á Friðarstöðum standa nokkur af gróðurhúsum bæjarins sem nú eru í niðurníðslu. Með því að varðveita upprunalega grunna gróðurhúsanna og innleiða nýja starfsemi sem leggur grunn að því sem koma skal á grunni þess sem áður var, er markmiðið að endurlífga anda og grósku staðarins. Ásamt veitingastað, ræktunaraðstöðu og útisvæði fyrir almenning sameinar aðsetrið kokka og aðra listamenn þar sem áhersla er lögð á að vinna með það hráefni sem staðurinn gefur af sér. Eldhús og stofa er sameiginleg á meðan vistarverurnar eru hugsaðar sem hvíldarstaður listamannanna þar sem hráleiki í efnisvali, vatn og nálægð við náttúruna ýtir undir frekari jarðtengingu í skjóli frá umstangi nútímasamfélagsins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
honnunargreining.elias.skemman.pdf | 21.5 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |