Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/30938
Í Hveragerði má finna fyrir kraftinum sem ólgar undir yfirborði staðarins. Sá kraftur hefur skapað sprungur og mótað mynd bæjarins. Upp úr sprungunum opnast glufa fyrir nýjan kraft til að komast upp á yfirborðið. Þar sem tveir heimar listamannsins mætast, sköpunin og miðlunin, myndast spenna. Líkt og flekar jarðskorpunnar, mætast þessir tveir heimar listamansins og leiða að nýjan kraft. Við göngustíginn í skógi þaktri hlíðinni undir Hamri hvíla vinnustofur og sýningarrými listamanna. Gler mætir steyptum flekum sem ramma inn rými byggingarinnar. Kofar í rjóðrum skógarins eru rými listamanna fyrir næringu og dvöl. Sprungur breyta landslagi og leyfa nýjum ólgandi krafti að berast á yfirborðið, líkt og listaverk.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerd_matthildur.pdf | 13.6 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |