Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/30950
Þrjú aðsetur listamanna standa við og vísa í nöfn gatna í Hveragerði. Þau miða að því að færa listina nær daglegu lífi bæjarbúa og skapa tengsl milli íbúa og listamanna. Hvert aðsetur er í stöku húsi með íbúð og vinnustofu sem nýtist einnig sem sýningarrými. Húsin hafa mismunandi eiginleika og áhrif.
Mörk er nálægt leikskóla þar sem krakkar geta svalað forvitninni.
Skógar er í miðju fallegs grenilundar þar sem íbúar svæðisins geta sest niður á bekk og átt samtal við listamanninn.
Heiði er staðsett í þyrpingu gróðurhúsa þar sem þekking bæjarbúa á garðyrkju verður hluti af sköpun listamannsins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
04-06-2018 Sturla Hrafn Sólveigarson - Greinagerð fyrir lokaverkefni .pdf | 29,18 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |