Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/30991
Íslensku sveitarfélögin hafa flest tekið upp eigin byggðarmerki.
Slík merki eru helst notuð til þess að merkja eignir, þjónustu og útgefið efni sveitarfélagsins – og eru þau skilgreind sem tákn hins opinbera. Fánar, sem gegna svipuðu hlutverki og byggðarmerki,
eru hins vegar álitnir vera í eigu almennings og má flagga við allskyns tækifæri. Hér hafa sjötíu og fjórir fánar verið hannaðir fyrir núverandi sveitarfélög og voru byggðarmerki þeirra höfð til hliðsjónar. Verkefnið er einnig rannsókn á hvernig miðla megi niðurnjörvuðum táknum byggðarmerkja á einföldu og afmörkuðu formi fánahönnunar, en fánar þurfa að vera auðþekkjanlegir úr fjarska og í allskyns veðrum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
jse_byggdarfanar_honnunargr.pdf | 10.89 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |