Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/31012
Þessi lokaritgerð er unnin til BA prófs í sálfræði við Háskólann á Akureyri. Markmiðið með þessari ritgerð var að athuga hvort kynjamunur sé til staðar á sjálfsmati, markmiðasetningu, líðan og stuðningi hjá 10-12 ára gömlum börnum í körfubolta. Einnig var lögð áhersla á að skoða samband sjálfsmats og markmiðasetningar hjá börnunum og hvort stuðningur frá foreldrum og þjálfurum barnanna tengist hærra sjálfsmati í íþróttinni. Lagður var spurningalisti fyrir 32 stúlkur og 29 drengi sem æfa körfubolta með Haukum og Njarðvík og svörin tekin saman í tölfræðiforriti. Í ljós kom að kynjamunur var verulega lítill í flestum spurningunum. Aðeins var marktækur munur á milli kynja hvað almenna líðan og stuðning frá þjálfara varðar. Stúlkunum leið almennt betur á æfingum og sögðu þjálfarann frekar hvetja sig til þess að setja sér markmið heldur en drengirnir. Einnig var afgerandi munur á þeim körfuboltafyrirmyndum sem börnin velja sér. Bæði var jákvæð fylgni á milli sjálfsmats og markmiðasetningu sem og sjálfsmats og stuðnings. Meirihluti niðurstaðanna var í samræmi við fyrri rannsóknir en ýmsir þættir rannsóknarinnar hafa ekki verið rannsakaðir áður.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA-kynjamunur-á-börnumPDFLOKA.pdf | 920.37 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |